Finnsku og íslensku dansnemendurnir eru í sameiginlegum tímum í tækni alla morgna í vikunni hjá Katri Soini, Katrínu Hall, Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Guðrúnu Svövu Kristinsdóttur. Eftir hádegi eru þeir á námskeiðum í kóreografíu hjá Ara Tenhula og snertispuna hjá Steinunni Ketilsdóttur.