Verkið er spunaverk og samið af leikaranemunum sjálfum í samvinnu við
listræna stjórnendur sýningarinnar þau Jón Atla Jónasson og Unu
Þorleifsdóttur.

Ekkert handrit var til í byrjun, aðeins spurningar þátttakenda,
árekstrar þeirra við eigin samtíma, vangaveltur þeirra um stöðu
einstaklingsins í samfélagi þar sem sjónarspil og órar eru allsráðandi.
Notast var við margvíslegar aðferðir í ferlinu: spuna, trúðatækni,
tilbúin frumsamin atriði, svokallaðar opnanir, og leitað jafnt í
frumsamda, lánaða og stolna texta þar til eftir stóðu stakir þræðir sem
fléttaðir eru saman í sýningu.

Óralandið er land sem við þekkjum öll. Það er nefnilega svo vinsæll
ferðamannastaður. Það veitir okkur ríkisfang án nokkurra spurninga. Fáni
þess er… tja, sá fáni sem við kjósum að flagga eftir því hvernig á
okkur liggur. Við eigum marga fána. Óralandið minnir stundum á önnur
lönd. Og stundum minna önnur lönd á óralandið. Það getur verið erfitt að
sjá hvar landamærin liggja. Til þess að fara þangað er ekki hægt að
bóka neina ferð á netinu. Ef þú gúglar það gerist fátt. Þú ert þín eigin
ferðaskrifstofa og fararstjóri. Góða ferð.

Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir, aðjúnkt í sviðslistum við leiklistar- og dansdeild Listaháskóla Íslands.

Aðrir listrænir stjórnendur eru: Jón Atli Jónasson, Egill Ingibergsson og Magnús Þór Þorbergsson.

Tónlist: Björn Pálmi Pálmason og Oddur S. Báruson, nemendur í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands.

Listrænir aðstoðarmenn eru Eva Signý Berger, Móeiður Helgadóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir.

Sýningar verða sem hér segir:

fös. 20.apríl- frumsýning uppselt

sun. 22.apríl- hátíðarsýning uppselt

fös. 27. apríl

sun. 29. apríl

fim. 3. maí

fös. 4. maí

sun. 6. maí

mán. 7. maí

fim. 10. maí

fös. 11. maí

Aukasýningar

mán. 21. maí

fim. 24. maí

föst. 25. maí

lau. 26. maí kl. 16:00

Sýnt er í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13. og hefjast sýningar kl. 20:00

Sýningafjöldi er takmarkaður og því er ráðlegt að tryggja sér miða í tíma. Miðasala fer fram á midi.is, midasala [at] lhi.is, og í síma 895 6994 til kl. 20:00.

Miðaverð er einungis 1.500 krónur.

ATHUGIÐ að sýningin er ekki við hæfi barna.