Undantekningar

Umsóknarfrestur fyrir nám í nýju diplómanámi á meistarastigi í leiktúlkun er til 21. janúar og umsóknarfrestur fyrir nám á leikarabraut er til 25. janúar næstkomandi.

Umsóknarfrestur fyrir nám í listkennsludeild er til 10. maí.

Hægt er að sækja um á fleiri en einni braut en umsækjendum er bent á að kynna sér upplýsingar um inntökuferli hverrar deildar.

Kynningadagur í öllum húsum

Föstudaginn 8. febrúar verða kynningardagar í öllum húsum Listaháskólans.
Kennarar og starfsfólk taka á móti áhugasömum og kynna nám á hverri braut. Möppur nemenda sem komust inn í skólann á síðasta ári verða til sýnis ásamt verkum nemenda og skoðunarferðir verða um húsnæði deildanna.

Nánari upplýsingar um dagskrá opna kynningardagsins í hverri deild kemur síðar.