Erling T.V. Klingenberg, aðjúnkt við myndlistardeild LHÍ sýnir á tveimur samsýningum um þessar mundir.  New Rocks Upon the Beach í Sixtyeight Art Institute í Kaupmannahöfn ásamt listamönnunum Moa Alskog, Rasmus Røhling, Agatha Gothe-Snape, Hugo Hopping og Dee Williams. Sýningarstjóri er Iben Bach Elmstrøm.

Frekari upplýsingar um sýninguna má finna á heimasíðu gallerísins hér

Einnig sýnir Erling í Wildwechsel gallerí í Frankfurt am Main á sýningunni "On the Top“  ásamt listamönnunum Antje Liemann, Johanna Rüggen og
Josef Loretan.  Frekari upplýsingar um sýninguna má finna hér. 

Erling hefur starfað sem aðjúnkt við myndlistardeild LHÍ frá 2013 og hefur samhliða því verið virkur í sýningarhaldi bæði hér heima og erlendis.  Erling tók einnig þátt í stofnun og reksturs Kling & Bang gallerís á árunum 2003-2015. 

Frekari upplýsingar um verk Erlings má finna hér.