Sláðu inn leitarorð
Mjöll Sigurdís Magnúsdóttir
Jarðtenging
Í æ algengara mæli þróa manneskjur með sér fjarlægð frá tilfinningum sínum og grunnþörfum. Í kjölfarið fylgir oft kulnun; tilfinningaleg, sálræn og líkamleg örmögnun.
Verkefnið byggist á meðferðarúrræði fyrir fólk sem lendir á þeim stað í lífinu. Umgjörðin í hönnuninni styður við að einstaklingurinn mæti aftur til sjálfsins, í átt til þess einfaldlega að vera.
Kaldaðarnes er kröftugur staður og býr yfir bæði áþreifanlegri og óáþreifanlegri orku. Þessi kraftur er nýttur í bataferlið, að leyfa gestinum að nýta gjafir náttúrunnar og rækta landið um leið og hann ræktar tenginguna við innri kjarna.



