Meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands býður uppá meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu en
námsleiðinni er ætlað að mæta menntunarþörf tónlistarkennara sem starfa innan tónlistarskólakerfisins.
Meistaranámið er rökrétt framhald þeirra sem hafa lokið námi í hljóðfærakennslu á bakkalárstigi. En það er ekki síður sniðið að tónlistarfólki og tónlistarkennurum sem eru með bakkalárgráðu eða aðra sambærilega menntun, starfandi kennurum í tónlistarskólum sem vilja efla sig í starfi og þróa.
Uppbygging námsins
Námið er tveggja ára fullt nám til 120 ects eininga en hægt er að taka námið með kennslu eða annarri vinnu á 3-4 árum og eru margir sem fara þá leið. Námsleiðin er unnin í nánu samstarfi við annað meistaranám við tónlistardeild og liskennsludeild LHÍ.
Leiðarstefið við mótun náms í söng- og hljóðfærakennslu er einstaklingsmiðun. Um námið sækja oft mjög reynslumiklir kennarar og tónlistarfólk. Það að sníða námið að þörfum hvers og eins er því mjög mikilvægt. Um 18 einingar tengjast því sem við köllum áherslufag. Áherslufagið getur verið í formi hljóðfæra- eða söngnáms, en einnig er hægt að velja þjálfun á öðrum völdum sviðum.
Dæmi: þjálfun á sviði spuna, tónsmíðavinnu, notkun hljóðtækni í kennslu, kórstjórn; í raun þjálfun á hvaða sviði sem nemandinn telur mikilvægt til að efla færni sína á kennsluvettvangi sínum. Við viljum sjá tónlistarnám þróast og styrkjast og þá er þessi þáttur námsins gríðarlega mikilvægur.
Fagstjóri meistaranáms í söng- og hljóðfærakennslu er elinanna [at] lhi.is (Elín Anna Ísaksdóttir), aðjúnkt.