Vefritið Kvika var gefið út af sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Einungis kom út eitt tölublað en ritinu var ætlað það hlutverk að skapa vettvang, aðhald og hvata fyrir hverskonar rannsóknarvinnu tengda sviðslistum innan sem utan skólans.
 
Lögð er áhersla á opinn vettvang, þ.e.a s mikill sveigjanleiki er til staðar varðandi tegundir texta sem tímaritið inniheldur.
Tekið var á móti stuttum sem löngum greinum/textum út frá ýmsum sjónarhornum (fræðilegum, fagurfræðilegum, pælingar, yfirlýsingar (manifesto), listrænar nálganir/aðferðir, umfjallanir, úttektir, o.fl.).
Einnig mátti koma með uppástungur varðandi tegundir af textum og stefnt að því að kalla eftir textum, ekki greinum, til að leggja áherslu á fjölbreytileika tímaritsins.
 
Vefritið átti að vera vettvangur fyrir:
· Orðræðu um sviðslistir á íslensku máli
· Miðlun þekkingar
· Varðveislu rannsókna
 
Með vefritinu átti að auka umsvif rannsókna á sviði sviðslista, skapa ný tækifæri og hvata, og vera miðstöð sjónarhorna innan sviðslistanna á Íslandi