Tónlistardeild
Rytmísk söng- og
hljóðfærakennsla
B.Mus.Ed.
Kennsluskrá 2023-2024
Hæfniviðmið námsleiðar
Þekking
Nemandi býr yfir þekkingu innan listgreinar. Í því felst að nemandinn:
- hafi góða þekkingu á afmörkuðu fræðasviði listgreinarinnar; svo sem kennslufræði, sálfræði, tónfræði, tónbókmenntum, tónlistarsögu og stílbrigðum tónlistarinnar,
- skilji aðferðir sem liggja til grundvallar iðkunar hljóðfæraleiks og söngs,
- hafi innsæi og skilning til að nálgast viðfangsefni hljóðfæraleiks og söngs sem sjálfstæður einstaklingur,
- hafi þekkingu á starfsumhverfi tónlistarkennara og tónlistarfólks,
- þekki tækja- og hugbúnað sem þjónar listgreininni,
- hafi grunnþekkingu á lagalegu umhverfi tónlistarkennara,
- geti sett nýjustu þekkingu í samhengi á viðeigandi sérsviði.
Leikni
- hafi öðlast færni í tónlistarflutningi og geti samhæft tækni og túlkun,
- hafi öðlast færni í hljóðfæra- eða söngkennslu,
- geti tekið gagnrýna afstöðu til eigin verkefna og annarra,
- geti tekið ákvarðanir og rökstutt mál sitt á faglegum grunni,
- búi yfir tækni og leikni til að vinna sjálfstætt,
- hafi víðsýni og frumleika í hugsun, sköpun og túlkun,
- greini hvenær þörf er á upplýsingum og hafi færni til að afla þeirra, meta áreiðanleika og nýta á viðeigandi hátt,
- hafa tamið sér fjölbreytni í vinnubrögðum,
- geti nýtt sér tækja- og tæknibúnað við tónlistariðkun og -kennslu.
Hæfni
- geti unnið sjálfstætt og skipulega, sett sér markmið, gert verkáætlun og fylgt henni,
- hafa tileinkað sér vinnubrögð sem eru viðurkennd á viðkomandi starfs- og fræðasviði,
- geta beitt viðurkenndum aðferðum við að afla gagna sem tengjast menntun og skólastarfi,
- hafi mótað innsæi til mannlegra samskipta við hljóðfæra- og söngkennslu,
- sé fær um að túlka og kynna hugmyndir sínar,
- geti tekið virkan þátt í samstarfi og stjórnað hópvinnu,
- hafa þróað með sér hæfni til frekara náms á sviði tónlistar og kennslu.