Sláðu inn leitarorð
Kamilla Michelle Rún Henriau
Al in Al
Í lítilli smiðju Al in Al er almenningi boðið að upplifa og taka þátt í umbreytingu og endurmótun áls frá einum hlut í annan.
Með því að smækka niður iðnaðarferli álmótunar er fólki gert kleift að kynnast ferlinu, endurhugsa samband sitt við ál og kynnast því í nýju samhengi. Það að framleiða nýtt ál er einn mest mengandi iðnaður heims, en í reglulegum umræðum um hin umdeildu álver Íslands á efnið sjálft til að gleymast.
Verkefnið veltir upp spurningum um virði efnisins og mikilvægi þess að skilja og virða einstaka endurmótunareiginleika þess.







