Jakob Sturla Einarsson 
Byggðarfánar: Fánar fyrir íslensku sveitarfélögin 

  

Íslensku sveitarfélögin hafa flest tekið upp eigin byggðarmerki. Slík merki eru helst notuð til þess að merkja eignir, þjónustu og útgefið efni sveitarfélagsins – og eru þau skilgreind sem tákn hins opinbera. 
 
Fánar, sem gegna svipuðu hlutverki og byggðarmerki, eru hins vegar álitnir vera í eigu almennings og má flagga við allskyns tækifæri. 
Hér hafa sjötíu og fjórir fánar verið hannaðir fyrir núverandi sveitarfélög og voru byggðarmerki þeirra höfð til hliðsjónar. 
 
Verkefnið er einnig rannsókn á hvernig miðla megi niðurnjörvuðum táknum
 byggðarmerkja á einföldu og afmörkuðu formi fánahönnunar, en fánar þurfa að vera auðþekkjanlegir úr fjarska og í allskyns veðrum.