Sláðu inn leitarorð
Jakob Hermannsson
Búkolla
Búkolla
Mismunandi teiknistílar draga upp teiknimynd sem byggð er á sögunni af Búkollu. Stílarnir skiptast á eftir kaflaskiptingum í sögunni og byggjast þeir á tvívídd, þrívídd og gervigreindarteikningu, ásamt ýmsum undirflokkum þessara þriggja stílbrigða. Sögnin um Búkollu er búin til úr vissum þjóðsagnaminnum líkt og hver teiknistíll byggist á vissum einkennum eða minnum. Stíll hönnuða er sífellt að þróast en á sama tíma er hver hönnuður hvattur til að hafa „sinn eigin stíl“. En getur sá stíll verið margir stílar? Stílarnir sem hér koma við sögu eru ólíkir og miserfiðir í framkvæmd; misjafnlega tímafrekir og misjafnlega flóknir. Blöndun þeirra stendur í samhengi við framvindu sögunnar og atburðarás hennar.
