Sláðu inn leitarorð
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Uppskera/Harvest
Uppskera er endursköpun á þorrablóti, þar sem lambakjöti hefur verið skipt út fyrir plöntufæði. Verkefnið snýst um að skapa umræðuvettvang um matvælaframleiðslu á Íslandi í gegnum matarupplifun við matarborð. Viss tækifæri og nýir möguleikar eru fólgnir í því að rækta meira af grænmeti, ávöxtum og korni á landinu.
En hvernig myndum við þá varðveita plöntufæði sem er ræktað allt árið um kring líkt og gert var með lambakjötið áður fyrr?
Ef fjárhúsum yrði breytt í gróðurhús og kindum skipt út fyrir plöntur, hvaða áhrif hefði það á matarmenningu Íslendinga?







