Sláðu inn leitarorð
Hanna Lind R. Sigurjónsdóttir
Endurrótun
Í hinum nútíma heimi ríkir ákveðin aftenging – aftenging manneskjunnar við uppruna sinn og tilgang, aftenging við umheiminn. Í grunninn er náttúran ein heild og manneskjan órjúfanlegur hluti hennar. Fleiri og fleiri glíma við eftirköst þessarar sundrunar: andlega og líkamlega vanlíðan og jafnvel algjört tilgangsleysi.
Ert þú einn af þeim?
Ef svo er langar mig að bjóða þér í ferðalag. Ferðinni er heitið á afar sérstakan stað. Stað þar sem undið verður ofan af þessari þróun, stað ætlaðan endurtengingu þinni við náttúruna.
Stað þar sem þér gefst tækifæri á að endurróta þig á nýjan leik.





