Haustið 2019 er Hákon Örn Helgason á barmi örvæntingar í Vesturbæjarlaug. Eyrum hans berast ljúfir tónar. Á bakkanum situr maður og spilar á banjó. Hver er þessi maður? Hvernig þorir hann að spila á banjó á almannafæri? Hefur hann svörin við stóru spurningum lífsins?  
 
Löngu síðar ákveður Hákon að leggja í stærstu svaðilför lífs síns og hefja ævintýralega leit að þessum dularfulla banjóspilara. Hann setur upp rannsóknarstofu og ræður til sín teymi. Hver er hann og hvar?
 
Aðstandendur:
Dramatúrg: Magnús Thorlacius
Tónlist: Inspector Spacetime  
Leikmyndahönnun: Rakel Andrésdóttir  
Leikmyndamálun og aðstoð: Helena Margrét Jónsdóttir
Smiður: Egill Ingibergsson
Ljós: Stefán Ingvar Vigfússon
Leikarar: Stefán Þór Þorgeirsson og Almar Blær Sigurjónsson
Hönnun: Margrét Aðalheiður Önnu- Þorgeirsdóttir 
 
Þakkir:
Anna Kristín, Andre Negrier, Fjölnir Gíslason, Mio Storåsen, Sigurlaug Þuríður Ragnarsdóttir, Tryggvi Sæberg Björnsson, Vignir Þór Pálsson, Hilmir Jensson, Karl Ágúst Þorbergsson og Smeykasti bekkurinn.
 
jesu-er-til_event-cover.jpg
 
hakon_spilar_a_banjo.jpg
 

Jesú er til, hann spilar á banjó (2021), by LHÍ Sviðslistir

Ágrip:  
 
Hákon Örn Helgason er sviðslistamaður með bakgrunn í spuna og uppistandi. Í sínu námi hefur hann lagt áherslu á sértæka eiginleika leikhúsmiðilsins, samband flytjenda og áhorfenda og skoðað leikhúsið sem einstaka viðburð sem verður ekki endurleikinn.  
 
Hákon er meðlimur uppistandshópsins VHS og spunahópsins Improv Ísland.