Vakin er athygli á hinum stórskemmtilegu og fræðandi tónlistarþáttum Ymur sem voru á dagskrá Rásar 1 í nóvember og desember 2018 en höfundur þeirra er Friðrik Margrétar- og Guðmundsson sem útskrifaðist af tónsmíðabraut LHÍ 2017. Þættina, sex talsins, er hægt að nálgast inni á spilara RÚV, sem og í hlaðvarpi þar sem hægt er að hlaða þeim niður.
Í þáttunum er fjallað um tónlist út frá sambandi skynjunar og hljóðs. Í hverjum þætti er farið inn í eina vídd tónlistar og skoðað hvernig hún birtist í tónlist frá fornöld til dagsins í dag, þvert á stefnur og menningarheima. Þemun eru margvísleg svo sem hávaði, óhljóð, læti, rytmi og yfirtónar sem sett eru í frumlegt og áhugavert samhengi. Mæla má með þessum þáttum fyrir allt áhugafólk um tónlist.