Háskóladagurinn 2019​ fer fram laugardaginn 2. mars frá kl. 12 - 16.
 
Í Laugarnesinu verður fjölbreytt dagskrá frá öllum deildum LHÍ og býður Listkennsludeild Listaháskóla Íslands​ gestum að taka þátt í „Vísindagöldrum“ - smiðju fyrir alla aldurshópa, á mörkum lista, vísinda og galdra mili kl. 13-15. 
 
Það er Jóhanna Ásgeirsdóttir​, myndlistarkona og meistaranemi í listkennsludeild, sem ætlar að kynna okkur fyrir efnafræði með galdramálningu sem skiptir um lit!
 
Jóhanna Ásgeirsdóttir er myndlistarkona útskrifuð með BFA úr New York University en stundar nú MA nám í listkennslu við Listaháskóla Íslands.
 
Meistaraprófsverkefnið hennar ber heitið Óravíddir og er sjónrænt stærðfræðinámsefni kennt í gengum málverk og smáforrit.
 
 
visindagaldrar_mynd.png
 

 

 
Háskóladagurinn 2019 fer fram laugardaginn 2. mars frá kl. 12 - 16.
 
Allir háskólar landsins standa að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna fjölbreytt námsframboð sem í boði er á Íslandi.
 
Kynningarnar fara fram í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Boðið verður upp á fríar strætóferðir milli staða.
 
Á Háskóladeginum bjóða háskólarnir upp á ótal viðburði, kynningar og uppákomur. Einnig gefst gestum og gangandi tækifæri til að spjalla við nemendur, kennara, náms- og starfsráðgjafa um allt sem viðkemur námi í skólunum sjö, og fá upplýsingar um fjölbreytta námsmöguleika.
 
haskoladagurinn_mynd.png