ATH! Því miður verðum við að fresta frumsýningum á útskriftaverkum Sviðshöfunda ótímabundið. 
 
 
Útskriftarnemendur á sviðhöfundabraut sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands frumsýna lokaverkefni sín helgina 26. til 28 mars næstkomandi. Verkefnin eru hluti af útskriftarhátíð LHÍ. 
 
Í ár útskrifast 8 nemendur af sviðshöfundabraut. Verkefni þeirra spanna vítt svið sviðslistanna og taka á fjölbreyttum málefnum, allt frá sjálfsævisögulegri leikritun og biðstöðu yfir afleiðingar ofbeldis og kúgunar og leitar að manni sem spilar á banjó. Öll eiga verkefnin það sameiginlegt að nálgast sviðslistamiðilinn á tilraunakenndan og gagnrýnin hátt með forvitni að vopni. 
Sýningar verða annars vegar í húsnæði sviðslistadeildar í Laugarnesi og í Borgarleikhúsinu. Í ár hafa 4 nemendur valið að útskrifast með áherslu á leikritun. Sviðslistadeild LHÍ og Borgarleikhúsið hafa gert með sér samstarfsamning sem felur í sér stuðning leikhússins við nýsköpun í leikritun og munu leikritin verða frumlesin í Borgarleikhúsinu. 
 
Frítt er inn á allar sýningar. Hér neðar má finna ítarlega dagskrá sýninga. 
 
Um sviðshöfundanámið
Á sviðshöfundabraut er unnið með hlutverk sviðshöfundarins í sviðslistum þ.e. leikstjórans, leikskáldsins eða sviðslistamannsins. Megin áhersla er lögð á að nemendur þrói með sér listræna sýn og nálgun við miðilinn sem höfundar og verði að námi loknu sjálfstæðir skapandi sviðslistamenn. 
 
Í náminu, sem er jöfnum höndum fræðilegt og verklegt, er lögð áhersla á sviðslistir í sem víðustum skilningi og er námið hugsað sem vettvangur fyrir tilraunir og rannsóknir innan sviðslista. Námið snýst um sögu, eðli, hlutverk og mörk sviðslista, tungumál þeirra og snertifleti við aðrar listgreinar.
 
Leiðbeinendur lokaverkefna: 
Karl Ágúst Þorbergsson 
Gréta Kristín Ómarsdóttir
Hafliði Arngrímsson 
Hilmir Jensson
Saga Sigurðardóttir
 
Upplýsingar um einstaka verk má finna hér á lhi.is, facebooksíðu sviðslistadeildar LHÍ og á Tix
 
Miðabókanir opna mánudaginn 22. mars og fara fram á www.tix.is
Athugið að vegna sóttvarnareglna er sætaframboð takmarkað
 
Dagskrá útskriftarverkefna sviðshöfunda 2021
 
Föstudagur 26. Mars: 
 
Laugardagur 27. Mars: 
 
Sunnudagur 28. Mars
 
Miðvikdagur 7. Apríl:
 
Fimmtudagur 8. Apríl: 
 
Föstudagur 9. Apríl:  
 
Laugardagur 10 apríl: