Sláðu inn leitarorð
Ungir einleikarar 2023 // umsóknarfrestur rennur út 1.október 2022
13. september 2022
Keppnin Ungir einleikara fer nú fram í tuttugasta sinn. Keppnin hefur verið árlegur viðburður frá árinu 2004 og byggir á samstarfi Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Keppnin fer fram í tveimur umferðum í ár. Í fyrri umferð eru umsækjendur metnir eftir innsendum myndbandsupptökum og
þeir umsækjendur sem komast áfram eru boðaðir í aðra umferð keppninnar.
Sigurvegarar koma fram á tónleikunum Ungir einleikarar ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands þann 25.maí 2023.
Umsóknarfrestur til þátttöku í ár rennur út á miðnætti þann 1.október 2022.
Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar um keppnina má finna hér.