ÞRÆÐIR kalla eftir efni í 8. tölublað

ÞRÆÐIR er vefrit gefið út árlega af tónlistardeild Listaháskóla Íslands og hefur það hlutverk að skapa vettvang, aðhald og hvata fyrir hvers konar rannsóknarvinnu tengda tónlist, innan sem utan Listaháskólans. 
Lögð verður áhersla á opinn vettvang og sveigjanleika varðandi tegundir texta, nálgun og inntak:
Fræðilegar greinar, umfjöllun um tónverk/flutning, listræn nálgun, aðferðafræði, þýðingar, listræn manifestó (yfirlýsingar), frjálslegar pælingar varðandi tónlistarstarf / kennslu / list höfunda eða annarra eru dæmi um tegundir texta. Höfundar eru hvattir til að nýta sér stafrænt umhverfi ritsins og bæta við hljóð-, vídeó- og myndskrám. Vefritið leggur áherslu á íslenska tungu en þó verður einnig tekið á móti textum á ensku.

Kallað er eftir efni í 8. tölublað
Lengd texta: 500 - 5000 orð
Skilafrestur texta: 1. mars 2023
Berist til: threads [at] lhi.is

Texta skal senda inn sem .doc/docx skrá. Myndskrár skal senda sér: 300dpi (.tif, .png, .jpg). Stuðst er við Chicago stílinn (https://vefir.hi.is/chicagoleidbeiningar/).

 

Nánar um Þræði

Ritstjórn Þráða skipa Atli Ingólfsson, Einar Torfi Einarsson og Þorbjörg Daphne Hall.