*CONTENT ONLY IN ICELANDIC*
ÞRÆÐIR er vefrit gefið út árlega af tónlistardeild Listaháskóla Íslands og hefur það hlutverk að skapa vettvang, aðhald og hvata fyrir hverskonar rannsóknarvinnu tengda tónlist innan sem utan skólans.
 
Lögð er áhersla á opinn vettvang og mikinn sveigjanleiki varðandi tegundir texta sem tímaritið inniheldur. Tekið verður á móti stuttum sem löngum greinum/textum út frá ýmsum tónlistarlegum sjónarhornum (fræðilegum, fagurfræðilegum, pælingar, yfirlýsingar (manifesto), listrænar nálganir/aðferðir, umfjallanir, úttektir, o.fl.). Einnig má koma með uppástungur varðandi tegundir texta og annað efni.
 
Vefritið beitir sér fyrir því að vera vettvangur fyrir:
 
· Orðræðu um tónlist á íslensku máli
· Miðlun þekkingar
· Varðveislu rannsókna
 
Með vefritinu viljum við auka umsvif rannsókna á sviði tónlistar, skapa ný tækifæri og hvata, og vera miðstöð sjónarhorna innan tónlistar.
 
Viðmið varðandi innsendra texta:
 
· Tegundir texta: fræðilegar greinar, umfjöllun um tónverk, listrænar nálgarnir, aðferðafræði, þýðingar, listræn manifestó (yfirlýsingar), frjálslegar pælingar varðandi tónlistarstarf/kennslu/list viðkomandi eða annarra.
· Tímaritið er opið fyrir uppástungum hverju sinni varðandi efni eða textagerða og má hér nefna sem dæmi umfjallanir eða úttektir á bókum, geisladiskum, tónleikum, hátíðum, o.s.frv. Einnig mætti hugsa sér heimildavinnslu eða viðtöl á myndbandsformi eða hljóðformi.
· Leitast verður við að virkja nokkur lykilhugtök varðandi efni og gerð texta, sem og aðferða til að skapa þekkingu og skilning: „reflection“ eða ígrundun (í framkvæmd eða eftir framkvæmd), rýni (á eigin list eða annarra), tengsl (finna tengsl, búa til tengsl), samhengi, og bakvinnsla/ferli (hvað liggur að baki, umhverfis, framundan).
· Grunnflokkar: tónsmíðar/tónskáld, tónfræði, tónlistarfræði, flytjendur/flutningur, annað (kennsla/gagnrýni/umfjöllun/dómur…)
 
Hvatt er til að nýta sér stafræna umhverfi ritsins og bæta við hljóð-, vídeó- og myndskrám.
 
Greinar verða ekki ritrýndar að þessu sinni en tímaritið stefnir á að innihalda bæði ritrýnt og óritrýnt efni.
 
Þó vefritið leggi áherslu á íslenska tungu er einnig tekið á móti textum á ensku.
 
Kallað er eftir efni í 3. tölublað:
 
Lengd texta: 500-5000 orð
Skilafrestur texta: 5. mars 2018
Texta skal senda inn sem .doc skrá - myndskrár skal senda sér: 300dpi (.tif, .png, .jpg, .pdf)) Berist til: threads [at] lhi.is
Stefnt er á útgáfu 3. tölublaðs í lok mars 2018.
 
Ritstjórn:
 
Berglind María Tómasdóttir
Einar Torfi Einarsson
Þorbjörg Daphne Hall
 
Frekari upplýsingar er að finna á vefsvæði ritsins: http://www.lhi.is/thraedir