Þræðir - veftímarit um tónlist

7. tölublað er komið út
 
Nýtt tölublað vefritsins Þræðir kemur út í dag.
 
Veftímaritið hefur það hlutverk að skapa vettvang, aðhald og hvata fyrir hvers konar rannsóknarvinnu tengda tónlist, innan sem utan Listaháskólans. Með vefritinu er stefnt að því að auka umsvif rannsókna á sviði tónlistar, skapa ný tækifæri og hvata, og vera miðstöð sjónarhorna innan tónlistar.
 
Við kynnum til leiks sjöunda tölublað tímaritsins, en þar má finna fimm nýjar greinar eftir Önnu Þórhildi Gunnarsdóttur, Atla Ingólfsson, Einar Torfa Einarsson, Helga Rafn Ingvarsson og Sigurð Flosason.
 
Ritstjórn Þráða skipa þau Atli Ingólfsson og Þorbjörg Daphne Hall.
 
Hægt er að lesa blaðið hér