Stofnun Rannsóknaseturs skapandi greina 

Stofnfundur Rannsóknaseturs skapandi greina var hadinn þriðjudaginn 23.5. sl.  Hlutverk Rannsóknaseturs skapandi greina (RSG) verður m.a. að stuðla að samráði háskóla, stofnana, stjórnvalda, Hagstofu Íslands og atvinnulífs menningar og skapandi greina, sem styrkt getur innviði og vöxt atvinnugreinanna og eflt gagnaöflun og greiningu sem nýst getur við fjölbreyttar rannsóknir og miðlun.   

Stofnaðilar setursins eru Háskólinn á Bifröst, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Listaháskóli Íslands. Háskólinn á Bifröst sér um umsýslu setursins. Stofnaðilar skipa einn fulltrúa í stjórn hver, Samtök skapandi greina skipa einn fulltrúa í stjórn og menningar- og viðskiptaráðherra tvo, þ.m.t. formann stjórnar sem er Anna Hildur Hildibrandsdóttir. Aðrir stjórnarmeðlimir eru; Halla Helgadóttir fulltrúi Samtaka skapandi greina, Hulda Stefánsdóttir fulltrúi Listaháskóla Íslands, Stefán Hrafn Jónsson fulltrúi Háskóla Íslands, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir fulltrúi Háskólans á Bifröst, Laufey Haraldsdóttir fulltrúi Háskólans á Hólum og Eyjólfur Guðmundsson fulltrúi Háskólans á Akureyri. Kristrún Heiða Hauksdóttir er fulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytis.  

Stjórnin mun kynna áherslur sínar og starfsáætlun í júní ásamt því að koma á laggirnar rágjafahópi í samráði við fulltrúa atvinnulífs skapandi greina og virkja þannig samtal ólíkra aðila innan skapandi greina.   

Aðdragandinn 

Frá árinu 2019 hefur Hagstofa Íslands unnið að því að safna og gefa reglulega út talnaefni um þróun atvinnugreina menningar og skapandi greina. 
Menningarvísar voru fyrst gefnir út árið 2021 og í annað sinn í maí sl. 
Haustið 2021 var sett á laggirnar undirbúningsstjórn fyrir stofnun Rannsóknasetur skapandi greina.  Verkefnið var leitt af Háskólanum á Bifröst í samstarfi við Listaháskóla Íslands og Samtök  skapandi greina með 
stuðningi frá fjórum ráðuneytum. Í undirbúningsstjórninni sátu Anna Hildur Hildibrandsdóttir formaður, Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor Listaháskóla Íslands, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir fyrrum forstöðukona Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Fyrir hönd Samtaka skapandi greina sátu Guðný Guðjónsdóttir fyrrum forstöðukona Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Erling Jóhannesson formaður Bandalags íslenskra listamanna. Undirbúningsstjórnin hefur nú hefur nú skilað af sér niðurstöðum úr þarfagreiningu og kortlagningu á skapandi greinum á Íslandi sem ætlað er sem vegnesti fyrir RSG. Skýrsla þess efnis verður gefin út og kynnt í júní.  

 Mynd tekin á stofnfundi Rannsóknaseturs skapandi greina f.h.: Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor Listaháskóla Íslands, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir forseti Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands, Hólmfríður Sveinsdóttir rektor við Háskólann á Hólum,
Anna Hildur Hildibrandsdóttir formaður stjórnar, Stefán Hrafn Jónsson forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, Hulda Stefánsdóttir sviðsforseti akademískrar þróunar í LHÍ, Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri.   

 Mynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson