Með ráðningu Steven Meyers er brotið blað í sögu kvikmyndalistar á Íslandi, sem nú verður í fyrsta sinn kennd á háskólastigi hér á landi. 

 
Steven lauk BA gráðu í félagsfræði frá University of Michigan, diplómu í kvikmyndagerð frá Academy of Film and Television (FAMU) í Prag og MFA í kvikmyndaleikstjórn frá Columbia University School of the Arts. Hann hefur fest sig í sessi sem viðurkenndur fagmaður í handrits- og kvikmyndaráðgjöf. Steven hefur starfað sem ráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands frá 2013 og hafði áður starfað við handritsráðgjöf fyrir ýmsa kvikmyndaframleiðendur frá árinu 2007. Steven hefur leikstýrt og skrifað handrit að fimm stuttmyndum sem hafa m.a. verið sýndar á Palm Springs og á Clermong-Ferrand stuttmyndahátíðunum. 
 
Steven hefur viðamikla reynslu af kennslu í handritagerð og leikstjórn auk þess sem hann hefur skipulagt og kennt fjölda vinnustofa í kvikmyndagerð hérlendis og erlendis, hvoru tveggja fyrir stúdenta og fagaðila. Þá hefur hann verið leiðandi í því að stofnað sé til kvikmyndanáms á háskólastigi á Íslandi. Sem hluti af þeirri vinnu hefur hann setið í stýrihópum um gerð námsskrár fyrir kvikmyndalist á háskólastigi og fyrir stofnun kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands.
 
Með ráðningu Steven Meyers er brotið blað í sögu kvikmyndalistar á Íslandi, sem nú verður í fyrsta sinn kennd á háskólastigi hér á landi. Steven verður fyrsti deildarforseti kvikmyndadeildar við Listaháskóla Íslands en stofnun deildarinnar hefur verið á stefnuskrá Listaháskólans frá því til hans var stofnað um aldamótin síðustu. Langþráðum áfanga hefur því verið náð í íslensku háskólasamfélagi nú þegar þessi áhrifamikli miðill í okkar samtíma fær tækifæri til að þroskast og mótast með sama hætti og aðrar fagreinar háskólastigsins. 
 
Steven er óskað velfarnaðar í starfi við þróun kvikmyndalistar í samfélagi listanna hjá LHÍ og í samstarfi við fagvettvang kvikmyndalistar innanlands og utan.