Reboot Hack er fyrsta háskólanemadrifna hakkaþonið á Íslandi og verður haldið nú í annað sinn helgina 14.-16.febrúar 2020. Í ár koma 12 háskólanemendur úr Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Verkefnið hefur sömuleiðis verið unnið í samstarfi við Háskólann á Akureyri en öllum háskólanemendum í heiminum er velkomið að taka þátt.
Reboot Hack er nýsköpunarkeppni þar sem tilgangurinn er að finna lausnir á raunverulegum áskorunum innan samstarfsfyrirtækja, með þverfaglegri samvinnu ásamt því að tengja fyrirtæki við framúrskarandi háskólanema á ýmsum sviðum.
 
Hægt er að hugsa um hakkaþon sem uppfinningamaraþon eða nýsköpunarkeppni þar sem þátttakendur með fjölbreyttan bakgrunn keppa saman í hópum og vinna í 24 tíma að lausn við þeim áskorunum sem kynntar eru hér fyrir neðan. Verðlaun eru veitt þeim teymum sem finna bestu lausn við hverri og einni áskorun. Heildarvirði veittra verðlauna verður meira en 1,2 milljón króna!
 
,,Við vonumst til þess að á annað hundrað háskólanemendur muni sækja viðburðinn en hakkaþon snúast ekki um að “hakka heldur frekar um að skapa.”
-Kristjana Björk Barðdal, framkvæmdastjóri Reboot Hack
 
Áskoranirnar í ár eru afar fjölbreyttar, allt frá því hvernig hægt sé að leikjavæða sparnað til þess hvernig tækni getur aukið starfsánægju.
Ítarlegri upplýsingar um áskoranirnar má finna hér. Þátttaka er ókeypis fyrir alla og í hverju teymi eru 2-5 þátttakendur. Skráning fer fram hér og viðburðinn á Facebook má finna hér.
 
Öllum er velkomið að líta við í Öskju en setningarathöfnin fer fram kl. 10 laugardaginn 15.febrúar en á sunnudeginum munu síðan teymin kynna lausnir sínar. Hægt verður að ganga á milli bása og hlýða á kynningar teymanna kl. 12-13:30 en topp fimm liðin munu síðan kynna lausnir sínar í sal 132 í Öskju kl. 14:15 þar sem dómarar velja síðan bestu lausnina. Í framhaldi af því fer fram verðlaunaafhending þar sem salurinn hefur einnig færi á því að kjósa sína uppáhalds lausn.
 
Reboot Hack var stofnað í maí 2018 af þremur vinkonum sem lögðu stund á tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Síðan þá hefur viðburðurinn tvöfaldast og verkefnastjórnin fjórfaldast.
 
Þeir samstarfsaðilar sem leggja fram áskorun eru Auður, Origo, KPMG, Vörður, AwareGo, Listaháskóli Íslands, Byggðastofnun og Ölgerðin.