Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands var skipt upp í tvær deildir haustið 2020, hönnunardeild annars vegar og arkitektúrdeild hins vegar. Undir hönnunardeild falla námsbrautir á BA stigi í grafískri hönnun, fatahönnun og vöruhönnun, ásamt meistaranámi í hönnun (MA Design, explorations and translations)
 
Undir arkitektúrdeild fellur námsbraut á BA stigi í arkitektúr og haustið 2021 mun bætast við námsbraut á meistaranámsstigi, MArch.
Hildigunnur Sverrisdóttir deildarforseti arkitektúrdeildar hefur undanfarna mánuði leitt undirbúning meistaranáms í arkitektúr ásamt samstarfsfólki sínu við deildina sem byggist á margra ára samtali og þróun um brautina. Kennarar við arkitektúr á meistaranámsstigi verða ásamt Hildigunni, Björn Guðbrandsson, Anna María Bogadóttir, Massimo Santanicchia, Steve Christer og Margrét Harðardóttir.
 
Þetta verður í fyrsta sinn sem arkitektúr er kenndur á meistarastigi á Íslandi og því í fyrsta sinn sem nemendum í arkitektúr gefst kostur á að ljúka fullnaðarnámi í arkitektúr hérlendis.
 
Meistaranám í arkitektúr við Listaháskóla Íslands er tveggja ára alþjóðlegt nám, árið skiptist milli haustannar þar sem nemendur vinna saman að rannsóknum og safna efni og þekkingu sem mun svo vera stuðningur við persónuleg hönnunarverkefni hvers nemanda á vorönn.
 
Námið verður að miklu leyti byggt á séreinkennum og viðfangsefnum hérlendis. Árlega mun þema liggja til grundvallar sameiginlegrar rannsóknar nemenda en einnig sem hluti af hönnunarferli hvers og eins. Fyrsta þemað verður torf og íslenskur byggingararfur og rýnt verður í hvað torfið getur kennt okkur í nútímasamhengi.
 
Þeir sem hafa áhuga á að vita meira um meistaranám í arkitektúr við Listaháskóla Íslands er bent á opinn kynningarfund fimmtudaginn 25. febrúar klukkan 12:00
 
Umsóknarfrestur rennur út 7. apríl 2021 og hægt er að sækja um á heimasíðu Listaháskóla Íslands hérna.
 
Frekari lestur má finna á Medium aðgangi LHÍ hér
 
 

*Ljósmyndir sem fylgja frétt tók Þorlákur Jón Ingólfsson, nemandi í BA arkitektúr

 
1.thorlakurjon1.jpeg