23. nóvember síðastliðinn flutti bandaríski tónlistarfræðingurinn Kimberly Cannady fyrirlestur við tónlistardeild LHÍ.

Kimberly Cannady hefur undanfarin ár unnið að viðamikilli vettvangsrannsókn hér á Íslandi sem snýr að þætti þjóðlegrar tónlistar (rímnasöngs, tvísöngs, langspilshefðar, vikivaka) í samtímanum.

Í rannsóknum sínum hefur hún skoðað þátt þjóðlegrar tónlistar í samhengi við kenningar breska mannfræðingsins Michael Herzfeld um menningarnánd eða „cultural intimacy“.

Kimberly Cannady fjallaði um rannsóknir sínar í hádegisfyrirlestrinum þar sem hún sagði hún frá vettvangsrannsókn sinni, aðferðafræði og fjallaði um helstu niðurstöður.

Fyrirlesturinn, sem ber heitið Cultural Intimacy of "Lousy Songs" in Iceland, fór fram í stofu S304, (Fræðastofu 1), Skipholti 31, tónlistardeild LHÍ.