Laugardaginn 11. maí 2019 stóð listkennsludeild Listaháskóla Íslands fyrir útskriftarviðburði í Menningarhúsunum í Kópavogi.
Viðburðurinn var hluti af útskriftarhátíð LHÍ og þar kynntu verðandi listgreinakennarar lokaverkefni sín með ýmiskonar hætti.
Dagskráin var spennandi en í boði voru margskonar erindi, tónlistarflutningur og fjölbreyttar smiðjur fyrir alla fjölskylduna!
Dagskrá stóð frá 10.30-16.30 í Gerðarsafni og var opin öllu fólki, börn ásamt aðstandendum voru sérstaklega boðin velkomin.