Efla þróun og rannsóknir á listmenntun í skólum

Menntamálastofnun og listkennsludeild Listaháskóla Íslands í samstarf

 
Menntamálastofnun og listkennsludeild Listaháskóla Íslands skrifuðu undir samstarfsyfirlýsingu þann 15. október 2019.
 
Markmið samstarfsins er að efla þróun og rannsóknir á listmenntun í skólum með því að nýta sameiginlega sérfræðiþekkingu og gögn.
 
Kennurum listkennsludeildar og nemendum í framhaldsnámi verður þannig gert kleift að nýta sér í rannsóknar- og þróunarskyni gögn og þekkingu innan Menntamálastofnunar. Jafnframt fær Menntamálastofnun aðgang að sérfræðiþekkingu innan listkennsludeildar og stofnanirnar miðla þekkingu sín á milli.
 
Í upphafi verður áhersla lögð á samstarf um greiningu á hlut myndefnis í námsgögnum, myndlæsi og listalæsi og um þróun og útgáfu námsefnis tengdu lokaverkefnum nemenda.
 
Einnig kemur til greina að vinna að sameiginlegum verkefnum um þróun og innleiðingu námskrár í list- og verkgreinum á grunn- og framhaldsskólastigi samfara þróun námsmats í list- og verkgreinum.
 
 
samstarfssamningur_vid_lhi.jpg
Fulltrúar listkennsludeildar og Menntamálastofnunar við undirritun samstarfsyfirlýsingar 15.10.2019