Hönnunar- og arkitektúrdeild lætur sig ekki vanta á hönnunarmars. Málþing og sýningar, opnanir og fyrirlestrar, gjörningar og tilraunir og svo mætti lengi telja. Það er af mörgu að taka!
HönnunarMars fer fram í tíunda sinn dagana 15. til 18. mars 2018. Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum. Á meðal viðburða ár hvert eru sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar. Á HönnunarMars sameinast allar greinar hönnunar; fatahönnun, arkitektúr, húsgagna- og innanhússhönnun, grafísk hönnun og vöruhönnun. Viðburðir hátíðarinnar eru skipulagðir af íslenskum hönnuðum og arktitektum, en þátttakendur hátíðarinnar telja um 400 ár hvert. Aukinn fjöldi erlendra þátttakenda kemur til landsins með hverju ári og tekur þátt í HönnunarMars. Hátíðin er orðin mikilvægt hreyfiafl í íslensku samfélagi og er viðskiptalegt vægi hátíðarinnar mjög mikið fyrir þátttakendur.
Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands kemur að hátíðinni með margvíslegum hætti og hér að neðan má sjá úrval viðburða sem tengjast deildinni með einu eða öðru móti. Þar á meðal eru viðburðir sem fara fram á vegum deildarinnar í húsnæði okkar, Þverholti 11, viðburðir á vegum starfsfólks og kennara deildarinnar og viðburðir á vegum hollnema deildarinnar. Hér að neðan eru upplýsingar um hvenær viðburðir eða opnanir þeirra hefjast og hvar þeir fara fram. Allar frekari upplýsingar um lengd viðburða og aðra opnunartíma má nálgast á síðu viðburðarins. Athugið að þessi listi er engan vegin tæmandi.
Þriðjudagur, 13. mars
15:30 // Hvernig? Málþing um samkeppnir
Sigrún Birgisdóttir, deildarstjóri hönnunar- og arkitektúrdeildar ásamt arkitektunum Sigríði Magnúsdóttur og Steve Christer.
Arion banki, Borgartún 19
17:00 // Önnur sæti
Anna Dröfn Ágústsdóttir, fagstjóri fræða hönnunar- og arkitektúrdeildar ásamt Guðna Valberg arkitekt
Arion banki, Borgartún 19
Miðvikudagur, 14. mars
11:00 // Gestagangur hönnunar- og arkitektúrdeildar: Vij5 - The next step
Arjan van Raadshooven og Anieke Branderhorst vöruhönnuðir og stofnendur Vij5 halda opinn fyrirlestur
Þverholt 11, Fyrirlestrasalur A
17:00 // Mottur í mars
Birta Rós Brynjólfsdóttir, Hrefna Sigurðardóttir og Steinunn Eyja Halldórsdóttir, fyrrum nemendur hönnunar- og arkitektúrdeildar.
18:00 // Illikambur
Hilda Gunnarsdóttir (Milla Snorrason), fyrrum nemandi í fatahönnun og Hanna Dís Whitehead, kennari við vöruhönnunarbraut.
18:00 // DesignMUNch
19:00 // Lifnaðarhættir / Forms of Life
Sýningarstjóri: Thomas Pausz, fagstjóri meistaranáms í hönnun.
Norræna húsið / The Nordic House
Fimmtudagur, 15. mars
09:00 // Design Talks
Meðal fjölmargra áhugaverðra fyrirlesara eru Steinþór Kári Kárason, prófessor í arkitektúr og tveir fyrrum nemendur LHÍ, Björn Steinar Blumenstein og Johanna Seeleman. Dagskrárstjóri er Hlín Helga Guðlaugsdóttir, sýningarstjóri og ráðgjafi í hönnunarhugsun.
Silfurberg, Harpa
https://designmarch.is/dagskra/designmunch
16:00 // Skógarnytjar
18:00 // Stússað í steininum
Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Emilía Sigurðardóttir, fyrrum nemendur í vöruhönnun ásamt núverandi nemendum.
Aðalstræti 2
18:00 // Mót
Theodóra Alfreðsdóttir, kennari við vöruhönnunarbraut.
18:00 // By Petra Bender
Petra Bender, fyrrum nemandi í fatahönnun.
Aðalstræti 2
19:00 // Snyrtisett hestahirðisins
17:15 - 22:00 // Mæna 9 – Útgáfupartý / Release Party
Mæna er tímarit hönnunar- og arkitektúrdeildar sem er hannað af nemendum á þriðja ári í grafískri hönnun undir stjórn Birnu Geirfinnsdóttur, fagstjóra í grafískri hönnun, Bryndísar Björgvinsdóttur, lektor á fagsviði fræða og Lóu Auðunsdóttur, aðjúnkt í grafískri hönnun.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsið
Föstudagur, 16. mars
11:00 // Flatbökusamsteypan
15:00 // Annað samtal
Hanna Dís Whitehead (kennari við vöruhönnunarbraut)
17:00 // Matís x LHÍ: Matarhönnun og matartengd nýsköpun
17:00 // Náin framtíð
Sýning nemenda í vöruhönnun
Þverholt 11, 3. hæð (stúdíórými)
Anna María Bogadóttir, aðjúnkt í arkitektúr við LHÍ ásamt fleirum.
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgata 41, 101 Rvk