Listaháskólinn leitar eftir drífandi, jákvæðum og áreiðanlegum aðila í tímabundið starf verkefnastjóra. Viðkomandi mun starfa að viðburðum og kynningarmálum í teymi verkefnastjóra undir stjórn kynningarstjóra. 
Stefnt er að því að ráða sem fyrst í stöðuna og lýkur ráðningartímabili við lok skólaárs 2021 - 2022.  
 
Um 100% starf er að ræða.  
 
Helstu verkefni: 
  • Skipulag og framleiðsla á viðburðum. 
  • Sértæk verkefni í deildum. 
  • Þátttaka í kynningarstarfi. 
  • Þátttaka í mótun á framtíðarsýn fyrir viðburðahald og kynningarmála LHÍ í samræmi við stefnu LHÍ undir stjórn kynningarstjóra. 
 
Leitað er eftir umsækjendum sem búa yfir: 
  • Menntun og starfsreynslu sem nýtist í starfi. Reynsla af verkefnastjórnun og viðburðahaldi er mikill kostur. 
  • Góðum skipulagshæfileikum. 
  • Góðri miðlunar-, samstarfs og samskiptahæfni. 
  • Góð hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli. 
 
Skil á umsókn 
Umsóknargögnum skal skilað eigi síðar en 9. febrúar 2022 á netfangið starfsumsokn [at] lhi.is, merkt: Verkefnastjóri 
 
Í umsókn skal vera: 
  • Greinargóð ferilskrá 
  • Kynningarbréf sem gerir grein fyrir styrkleikum umsækjanda fyrir starfið 
  • Afrit af prófskírteinum 
  • Nöfn aðila sem leita má til með umsagnir. 
  • Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri. 
 
Frekari upplýsingar 
Upplýsingar um starfið veitir Vigdís Másdóttir, kynningarstjóri, vigdismas [at] lhi.is 
 
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Listaháskólinn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 
 
Starfsumhverfi 
Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun með viðurkenningu á fræðisviðinu listir. Starfsumhverfið er gefandi og kraftmikið samfélag nemenda sem stunda nám undir handleiðslu framúrskarandi listamanna og annarra sérfræðinga. Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir fagmennsku og er í fararbroddi fyrir þróun almennrar menntastefnu í listum. Starfsstöðvar skólans eru við Þverholt, Skipholt, Laugarnesveg og Austurstræti í Reykjavík.