Listaháskólinn auglýsir eftir umsóknum um starf háskólakennara í grafískri hönnun. Viðkomandi mun taka þátt í þróun náms á sviði arkitektúrs, hönnunar og myndlistar og vera þátttakandi í fræða- og fagsamfélagi Listaháskólans. Starfið felur í sér kennslu og stefnumótun um nám í grafískri hönnun við hönnunardeild. Meðal helstu viðfangsefna í námi í grafískri hönnun eru myndlýsingar og letur, upplýsingahönnun, mörkun og grafískar útfærslur fyrir ólíka miðla. Framundan er frekari þróun á námskeiðum fyrir stafræna miðla.

Starfshlutfall er eftir samkomulagi allt að 100%. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2022.

Menntunar-, reynslu- og hæfniskröfur

Hæfi umsækjanda verður metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sé reglurnar við gerð umsóknar. Við ráðningu verður meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Frammistaða í viðtölum mun hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar. 

Leitað er eftir umsækjendum sem búa yfir:

  • Meistaragráðu í hönnun eða annarri háskólamenntun sem nýtist í starfi. Samkvæmt reglum um veitingu akademískra starfa má í sérstökum tilfellum, þegar umsækjandi hefur að baki viðamikla reynslu, meta feril hans til jafngildis formlegri menntun. 
  • Sterkri faglegri sýn og starfsreynslu á sviði grafískrar hönnunar.
  • Reynslu af kennslu. 
  • Góðri miðlunar-, samstarfs og samskiptahæfni. 
  • Góð hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli.
Skil á umsókn

Umsóknargögnum skal skilað eigi síðar en 9. febrúar 2022 á netfangið starfsumsokn [at] lhi.is, merkt: Háskólakennari í grafískri hönnun.

Í umsókn skal vera: 

  • Greinargóð ferilskrá sem nær meðal annars yfir listrænan feril umsækjanda og kennslureynslu.
  • Staðfest afrit af prófskírteinum.
  • Greinargerð sem sýnir faglega sýn umsækjanda á þróun háskólamenntunar í grafískri hönnun.
  • Nöfn aðila sem leita má til með umsagnir.
  • Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri.
Frekari upplýsingar

Upplýsingar um starfið veitir Katrín Ólína Pétursdóttir, deildarforseti hönnunardeildar, katrinolina [at] lhi.is og Eva María Árnadóttir sviðsforseti arkitektúrs, hönnunar og myndlistar, evamaria [at] lhi.is. Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.  Listaháskólinn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Starfsumhverfi

Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun með viðurkenningu á fræðisviðinu listir.  Starfsumhverfið er gefandi og kraftmikið samfélag nemenda sem stunda nám undir handleiðslu framúrskarandi listamanna og annarra sérfræðinga. Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir fagmennsku og er í fararbroddi fyrir þróun almennrar menntastefnu í listum. Starfsstöðvar skólans eru við Þverholt, Skipholt, Laugarnesveg og Austurstræti í Reykjavík.