LISTNÁMSKEIÐ FYRIR KRAKKA:

MYNDLIST, HÖNNUN, SVIÐSLISTIR, TÓNLIST

 

Listkennsludeild Listaháskóla Íslands býður upp á listnámskeið fyrir áhugasama krakka í 4.- 6. bekk.
 
Námskeiðið er 12 skipti, hefst þriðjudaginn 13. september og stendur til 6. desember.
 
Ekki er kennsla 1. nóvember.
 
Tímarnir verða á þriðjudögum kl. 14:30 - 16:30 í húsnæði listkennsludeildar, LHÍ Laugarnesvegi 91.
 
Kennarar á námskeiðunum eru nemendur í listkennslu- og kennslufræðum í listkennsludeild.
 
Umsjón: Hye Joung Park, aðjúnkt í listkennsludeild LHÍ.
 
Hámarksfjöldi þátttakenda: 20
 
Verð: 15.000.- kr.
 
Skráning: olofhugrun [at] lhi.is
 
Vinsamlegast sendið skráningartölvupóst með fullu nafni og kennitölu barns og forráðamanns ásamt fullu nafni, kennitölu og símanúmeri forráðamanns.
 
Seinasti skráningardagur er 12. september.