Þriðjudaginn 8. nóvember kl. 19 verður kvikmyndin Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur forsýnd í Bíó Paradís og útgáfuhóf samnefndrar bókar í beinu framhaldi kl. 20.

Jarðsetning er margslungið verk þar sem farið er inn í stórhýsi Iðnaðarbankans (síðar Íslandsbanka, Glitnis og aftur Íslandsbanka) við Lækjargötu, sem rís á sjöunda áratugnum í anda alþjóðlegra framtíðarhugmynda. Hálfri öld síðar fær byggingin dóm um að víkja. Innan úr byggingunni verðum við vitni að niðurrifi bankans með daglegt líf borgarinnar í bakgrunni. Þetta er jarðsetning. Endalok stórhýsis á endastöð hugmynda um einnota byggingar. Í kvikmyndinni mæta áhorfendur afli vélarinnar og kröftum náttúrunnar og í bókinni fléttast frásögn af lífi og dauða byggingar við sögu borgar, sögu hugmynda og sögu höfundar. Upptökur af niðurrifi byggingarinnar fóru fram á árunum 2017-2018 en hún þjónaði sem banki fram til ársins 2015 og vék í kjölfarið fyrir nýrri hótelbyggingu. Bankabyggingin hvílir nú á urðunarstöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Útgáfu bókarinnar og kvikmyndarinnar verður fagnað með forsýningu á myndinni í Bíó Paradís kl. 19 og útgáfuhófi í beinu framhaldi kl. 20 þriðjudaginn 8. nóvember. Myndin var valin til sýninga á RIFF og verður í almennum sýningum Bíó Paradís frá 9. nóvember.
 

Um myndina Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur
kvikmyndataka: Logi Hilmarsson
klipping: Sighvatur Ómar Kristinsson
hljóð og tónlist: Bergur Þórisson
litgreining: Trickshot
leikstjóri og framleiðandi: Anna María Bogadóttir
framleiðslufyrirtæki: Úrbanistan
lengd: 52 mín
 
Um bókina Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur
Hönnun og uppsetning: Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir
Útgefandi: Angústúra í samstarfi við Úrbanistan
308 síður með ljósmyndum
 
Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, leggur áherslu á menningar- og félagslegar hliðar hins byggða umhverfis sem hún nálgast frá sjónarhóli daglegs lífs í samhengi flókinna kerfa og hvata. Hún vinnur með byggingararf sem framsækið afl í arkitektúr og verk hennar finna sér farveg á vettvöngum arkitektúrs, ritlistar og sjónlista. Anna María lauk meistararáðu í arkitektúr frá Columbia Háskóla í New York árið 2009 en hafði áður starfað í um áratug við menningar- og sýningarstjórn á Íslandi og Danmörku og lokið M.A. gráðu í menningarfræði og M.Sc. gráðu í stafrænni hönnun og miðlun. Anna María er lektor við arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands og stofnandi og eigandi Úrbanistan.
 
Angústúra er bókaforlag sem opnar glugga út í heim með útgáfu spennandi og fallegra bóka frá öllum heimshornum, á íslensku og í vönduðum þýðingum fyrir fólk á öllum aldri. Bækur Angústúru hafa hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar. angustura.is

Úrbanistan starfar breitt á sviði arkitektúrs gegnum hönnunar-, varðveislu- og skipulagsverkefni auk þess að stunda útgáfu, sýninga- og kvikmyndagerð er snýr að eðli og umbreytingu hins manngerða umhverfis.