Að tillögunni vinnur hún með sýningarstjóranum Alessandro Castiglioni og hafa þau unnið saman nokkrum sinnum, meðal annars með verk hennar á sýningum í söfnum í Genóa og á Gíbraltar.
Aðrir sem tilnefndir eru:
Elín Hansdóttir með sýningarstjóranum Carson Chan
Hrafnhildur Arnardóttir með sýningarstjóranum Birtu Guðjónsdóttur
„Það er spennandi að fá að halda áfram með tillöguna – það opnast heill heimur af möguleikum,“ segir Hekla Dögg Jónsdóttir í viðtali við Morgunblaðið. „En ég mun vinna áfram með hugmyndir og hluti sem ég hef áður unnið með og sýnt,“ bætir hún við. „Svo er ég svo heppin að hafa verið í rannsóknarleyfi frá LHÍ og er því alveg tilbúin fyrir þessa vinnu. Ég hef undanfarið hlaðið upp hugmyndum og unnið út frá þeim.“
Í rannsóknarleyfi sínu vann hún að sýningunni Evolvement í Kling & Bang og í tengslum við sýninguna var gefin út bókin Ég er hér sem styrkt var af Útgáfusjóði Listaháskólans og Myndlistarsjóði.
Við óskum Heklu Dögg til hamingju með tilnefninguna og óskum henni velgengni í áframhaldandi þróun tillögunnar. Endanlegt val verður kynnt í maí.