Hausttónleikar í tónlistardeild 2021

Nú er gengið í garð tímabil hausttónleika í tónlistardeild og mun það standa dagana 26. nóvember til 17. desember 2021. Að þessu sinni ríða nemendur í söngdeild á vaðið og flytja frönsk sönglög. Í kjölfarið fylgja svo brautartónleikar hinna ólíku hljóðfærabrauta tónlistardeildar.
 
Fernir útskriftartónleikar eru á dagskránni að þessu sinni, þeir Daníel Þorsteinsson, Hugi Þeyr Gunnarsson og Páll Cecil Sævarsson ljúka allir prófi í tónsmíðum ásamt því að Símon Karl Sigurðarson Melsteð, klarínettuleikari, brautskráist af hljóðfærabraut.
 
Dagskrá annarinnar lýkur svo með upptakti að Ómkvörninni þar sem tónsmíðar 3. árs tónsmíðanema fá að hljóma í flutningi kennara skólans.

Tónleikarnir fara flestir fram í Dynjanda, nýjum tónleikasal Listaháskólans, sem staðsettur er fyrir aftan Skipholt 31 en einnig í Kaldalónssal Hörpu.

Vakin er athygli á því að vegna samkomutakmarkana eru 50 manna fjöldatakmarkanir á alla hausttónleika tónlistardeildar.

 
Nánari dag- og tímasetningar stakra tónleika má sjá hér fyrir neðan.
 
 

Hausttónleikar // Frönsk sönglög

Föstudaginn 26. nóvember klukkan 18 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Víóla

Þriðjudaginn 30. nóvember klukkan 19 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Píanó

Miðvikudaginn 1. desember klukkan 18 í Dynjanda

 

Útskriftartónleikar // Daníel Þorsteinsson - MA Tónsmíðar

Miðvikudaginn 1. desember klukkan 20 í Kaldalóni, Hörpu

Hlekkur á viðburð: https://fb.me/e/2ckiIyRpk

 

Hausttónleikar // Gítar

Miðvikudaginn 1. desember klukkan 20 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Klarínett og kammerverk

Föstudaginn 3. desember klukkan 18 í Dynjanda

 

Útskriftartónleikar // Símon Karl Sigurðarson Melsteð - BA Klarinett

Föstudaginn 3. desember klukkan 20 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Kammertónlist

Laugardaginn 4. desember klukkan 14:30 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Selló

Laugardaginn 4. desember klukkan 16 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Saxófónn, trompett, horn, flauta

Laugardaginn 4. desember klukkan 18 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Fiðla

Mánudaginn 6. desember klukkan 18 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Fiðla og píanó

Mánudaginn 6. desember klukkan 20 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Söngur

Þriðjudaginn 7. desember klukkan 17 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Söngur

Þriðjudaginn 7. desember klukkan 19 í Dynjanda

 

Hausttónleikar // Skapandi tónlistarmiðlun

Miðvikudaginn 8. desember klukkan 20 í Dynjanda

 

Útskriftartónleikar // Hugi Þeyr Gunnarsson - BA Tónsmíðar

Föstudaginn 10. desember klukkan 20 í Dynjanda

 

Útskriftartónleikar // Páll Cecil Sævarsson - BA Tónsmíðar

Föstudaginn 10. desember klukkan 21 í Dynjanda

 

Upptaktur að Ómkvörninni // Tónsmíðar (Hljóðfæratónsmíðar 3. árs)

Föstudaginn 16. desember klukkan 20:30 í Dynjanda