Háskóladagurinn 2022 verður haldinn með stafrænum hætti laugardaginn 26 febrúar milli kl. 12:00 - 15:00. Áhugasamir einstaklingar geta kíkt inn á vefsíðu Háskóladagsins og heimasíðu Listaháskólans til að finna upplýsingar um mismunandi námsbrautir sem skólinn hefur upp á að bjóða.

Á milli 12-15 verður hægt að spjalla við starfsfólk Listaháskólans og nemendur í gegnum rafrænt spjall á vefsíðunni. Einnig er hægt að kynna sér allar námsbrautir á Bachelor-stigi í háskólum landsins. Listaháskólinn hvetur sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri og kynnast betur því námi sem áhugi er fyrir.