Föstudaginn 17. og laugardaginn 18. janúar fer af stað röð af einkasýningum útskriftarnema í mastersnámi í myndlist við Listaháskólann. Þessar sýningar verða með tveggja vikna millibili í janúar og febrúar.

Sýningarnar eru hluti af lokaverkefnum nemenda og eru vettvangur þar sem tækifæri gefst til að láta reyna á eigin listrænu sýn og ákvarðanatöku innan ramma námsins. Lokaverkefnin eru þáttur í tveggja ára MA námi nemenda þar sem þeir hafa þróað áfram eigin aðferðir, rannsóknir og samhengi. Í vor verður svo einnig haldin útskriftarsamsýning í Nýlistasafninu í Marshallhúsinu.

Meistaragráðan í myndlist byggist á ofangreindum einkasýningum og gagnrýnum íhugunum varðandi hana, listaverki á samsýningunni í Nýlistasafninu, faglegum vinnubrögðum ásamt meistararitgerð þar sem fram koma aðferðir, efnisinntak, samhengi og greinargerð um lokaverk. Sýningarnar eru í Kubbnum, galleríi myndlistardeildar í Laugarnesi og RÝMD, nemendagallerí myndlistardeildar í Breiðholti.

Sýningarnar eru opnar:
Kubburinn - miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur frá 13:00 – 17:00 í vikunni eftir opnun.
RÝMD -  sunnudagur, miðvikudagur og föstudagur 14:00 – 18:00 í vikunni eftir opnun.

*sýning Sabine Fischer er opin sun/mið/fös 16:00-20:00

Dagskrá:

17. janúar: Lukas Bury – Kubburinn opnun kl. 17:00 - 19:00
18. janúar: Sabine Fischer – RÝMD opnun kl. 17:00 - 21:00

31. janúar: Nína Óskarsdóttir – Kubburinn opnun kl. 17:00 - 19:00
1. febrúar: Sísí Ingólfsdóttir – RÝMD opnun kl. 17:00 - 19:00

14. febrúar: Hugo Ramon Llanes Tuxpan – Kubburinn opnun kl. 17:00 - 19:00
15. febrúar: María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir – RÝMD opnun kl. 17:00 - 19:00

28. febrúar: Mari Ane Bø – Kubburinn opnun kl. 17:00 - 19:00
29. febrúar: Guðrún Sigurðardóttir – RÝMD opnun kl. 17:00 - 19:00