Föstudaginn 8. og laugardaginn 9. febrúar fer af stað röð af einkasýningum útskriftarnema í masternámi í myndlist. Þessar sýningar verða með tveggja vikna millibili í febrúar og mars.

Sýningarnar eru hluti af lokaverkefnum nemenda og eru vettvangur þar sem tækifæri gefst til að láta reyna á eigin listrænu sýn og ákvarðanatöku innan ramma námsins. Lokaverkefnin eru þáttur í tveggja ára MA námi nemenda þar sem þeir hafa þróað áfram eigin aðferðir, rannsóknir og samhengi. Í vor verður svo einnig haldin útskriftarsamsýning í Nýlistasafninu í Marshallhúsinu.

Meistaragráðan í myndlist mun því byggjast á ofangreindum einkasýningum og gagnrýnum íhugunum varðandi hana, listaverki á samsýningunni í Nýlistasafninu, faglegum vinnubrögðum ásamt  meistararitgerð þar sem fram koma aðferðir, efnisinntak, samhengi og greinargerð um lokaverk. Sýningarnar eru í Kubbnum, gallerí myndlistardeildar í Laugarnesi og RÝMD, nemendagallerí myndlistardeildar í Breiðholti.

Fagstjóri meistaranáms í myndlist er Bryndís Snæbjörnsdóttir og fagstjóri fræða er Jóhannes Dagsson.

Sýningarnar eru opnar:
Kubburinn - miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur frá 13:00 – 17:00 í vikunni eftir opnun.
RÝMD -  sunnudagur, miðvikudagur og föstudagur 14:00 – 18:00 í vikunni eftir opnun.

Dagskrá:

8. febrúar: Kimi Taylor – Kubburinn opnun kl. 16:00 - 18:00
9. febrúar: Pier Yves Larouche – RÝMD opnun kl. 14:00 - 16:00

22. febrúar: Ragnheiður Guðmundsdóttir – Kubburinn opnun kl. 16:00 - 18:00
23. febrúar: Katrina Jane Perry – RÝMD opnun kl. 14:00 - 16:00

8. mars: Sihan Yang – Kubburinn opnun kl. 16:00 - 18:00
9. mars: María Hrönn Gunnarsdóttir – RÝMD opnun kl. 14:00 - 16:00

22. mars: Margrét Helga Sesseljudóttir – Kubburinn opnun kl. 16:00 - 18:00
23. mars: Kirill Lorech – Kubburinn no. 2 opnun kl. 14:00 - 16:00