Bryndís Snæbjörnsdóttir, prófessor Listaháskólans í MA í myndlist, og Mark Wilson hlutu Myndlistarverðlaun ársins 2022 fyrir sýninguna Vísitasíur í Listasafninu á Akureyri.

Listaháskólinn óskar Bryndísi og Mark innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu og þeirra dýrmæta framlag til listarinnar og ekki síst að efla veg listrannsókna á fræða- og vísindasviðinu.

Þess ber að geta að Bryndís og Mark verða með fyrirlestur í myndlistardeild, Laugarnesveg 91 - næstkomandi föstudag milli kl. 13 - 14. 

Í umsögn dómnefndar um sýningu Bryndísar og Mark kemur fram:
 
„Sýningin er afrakstur margra ára rannsóknarverkefnisins Ísbirnir á villigötum sem þau hafa unnið í samvinnu við sérfræðinga á sviði þjóðfræði, náttúru- og umhverfisfræði. Verkefnið snýst um að auka þekkingu á tengslum dýra, manna og umhverfis á tímum hamfarahlýnunar. Til þess er sjónum beint að hvítabjörnum á Íslandi í fortíð og nútíð. Verkin á sýningunni varpa ljósi á spurningar um náttúruvernd, skoða frásagnir af árekstrum fólks og hvítabjarna í gegnum tíðina og hvað það er sem gerist þegar þessi tvö rándýr mætast.“

„Ferill þeirra er fjölbreyttur og þau hafa nýtt rannsóknaraðferðir samtímalistar til að eiga í samtali við rannsóknir á öðrum sviðum, svo sem náttúruvísindum, þjóðfræði og umhverfisfræðum. Þau líta svo á að aðferðir samtímalistar geti fært mikilvæga viðbót í samtal milli ólíkra fræðigreina og beint sjónum í nýjar og óvæntar áttir. 

Bryndís og Mark nýta fjölbreyttar aðferðir við framsetningu verka sinna, þar sem samspil myndbandsverka, fundinna hluta, teikninga, ljósmynda og ýmissa gagna mótar innsetninguna í samhengi við hvern og einn sýningarstað. Innsetning þeirra í Listasafninu á Akureyri var í senn áhrifarík og fræðandi og myndaði áhugaverða heild í rými safnsins.

Listaháskólinn sendir öllum tilnefndu listamönnum haminguóskir með þeirra sýningar og þessar viðurkenningar fyrir listframlög sín.