Brogan Davison hefur verið ráðin fagstjóri meistaranáms í sviðslistum.

Brogan er danshöfundur og sviðslistakona frá Bretlandi og er búsett í Reykjavík. Hún útskrifaðist með MA gráðu frá Das Theatre braut Listaháskólans í Amsterdam 2019 og hlaut BA í dansleikhúsi frá Laban í London 2010. Hún stofnaði verðlauna sviðslistahópinn Dance For Me ásamt samstarfsmanni sínum Pétri Ármannssyni en þau hafa starfað bæði hérlendis og alþjóðlega. Þau hafa skapað fjölbreytt sviðslistaverk sem dansa á mörkum danslistar, heimildaleikhúss og uppistands og hafa verk þeirra farið fram á sviði og í heimahúsum. Síðan 2013 hafa þau sýnt verk sín meðal annars í Þýskalandi, Hollandi, Noregi, Danmörku, Bretlandi, Finnlandi, Ítalíu, Svíþjóð, Sviss og Kanada og í leikhúsum á borð við Productiehuis Theater Rotterdam (NL) and Künstlerhaus Mousonturm (DE).

Brogan er annar listrænna stjórnenda Reykjavík Dance Festival. Hún hefur gegnt hlutverki fagstjóra meistaranáms í sviðslistum við Listaháskóla Íslands síðan í janúar 2021.

Brogan eru færðar hamingju- og heillaóskir með ráðninguna.