19 nemendur brautskráðust frá  Listaháskóla Íslands 26. janúar síðast liðinn.
 
Alls brauðtskráðust átta nemendur frá listkennsludeild, þar af sjö úr listkennslufræðum og einn úr kennslufræðum.
 
Frá tónlistardeild brautskráðust 10 nemendur, fjórir úr meistarnámi í tónsmíðum, einn úr grunnnámi í nýmiðlatónsmíðum, einn úr grunnnámi í skapandi tónlistarmiðlun, tveir úr grunnnámi í hljóðfæratónsmíðum, einn úr grunnnámi í rytmískri kennslufræði og einn úr grunnámi á hljóðfæri.
 
Einn nemandi brautskráðist frá hönnunardeild með BA gráðu í grafískri hönnun.
 
Við óskum nýlega útskrifuðum nemendum frá Listaháskóla Íslands innilega til hamingju og óskum þeim velfarnaðar í því sem þau taka sér nú fyrir hendur.