Föstudagskvöldið 18. mars kl. 20 opnar Hafnarborg sýninguna Umgerð með verki myndlistartvíeykisins Hugsteypunnar, sem er samstarf myndlistamannanna Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur og Þórdísar Jóhannesdóttur sem báðar stunda nám á meistaranámsbraut myndlistardeildar Listaháskóla Íslands. Verkið er þrívíð innsetning sem leggur undir sig sýningarrýmið og teygir anga sína um veggi og gólf í aðal-sal safnsins. Innsetningin tekur breytingum þar sem mismunandi myndum er varpað yfir salinn og lýsingin breytist. Verkið rambar á mörkum málverks og ljósmyndar eða stakra skúlptúra og heildrænnar innsetningar. 

Á sýningunni veltir Hugsteypan fyrir sér myndlist bæði frá eigin sjónarhóli sem listamanna en einnig með augum áhorfenda sem eru hvattir til þess að taka myndir í innsetningunni á hvern þann máta sem verkið blæs þeim í brjóst. Sé myndunum deilt á netið er þeim varpað inn í sýningarrýmiðjafnóðum og þær verða þannig hluti af innsetningunni. 

Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur (f. 1976) og Þórdísar Jóhannesdóttur (f. 1979) útskrifuðust báðar úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2007. Ingunn og Þórdís starfað jöfnum höndum saman undir merkjum Hugsteypunnar síðan árið 2008 og í sitt hvoru lagi við eigin myndlistarverkefni. Sem Hugsteypan hafa þær tekið þátt í fjölda sýninga t.a.m. í Kling & Bang gallerí, Hafnarborg, Listasafni Árnesinga, Listasafni Akureyrar og Gallerí Ágúst, auk nokkurra samsýninga erlendis. Efnistök Hugsteypunnar hafa verið allt frá hugleiðingum um listasöguna og eðli myndlistar til notkunar á viðurkenndum aðferðum rannsókna við gerð myndlistarverka. Þær stöllur stunda nú meistaranám í myndlist við Listaháskóla Íslands. 
Sýningin Umgerð er aðlöguð að rými Hafnarborgar en var upphaflega sett upp í Listasafni Akureyrar – Ketilhúsi.

Frekari upplýsingar á www.hafnarborg.is