Framboðið eftir Þóreyju Birgisdóttur er afrakstur námskeiðisins: Leikarinn sem höfundur undir leiðsögn Hilmis Jenssonar. Sýningin er úrvinnsla rannsóknar Þóreyjar á forfeðrum og formæðrum sínum og þá sérstaklega honum Jóhannesi Kr. Jóhannessyni. Verkið er einungis lítið púsl í mjög, mjög stóru púsluspili. 

Kjósið mig og ég mun bjarga Íslensku þjóðinni frá glötun.
Til heiðurs Jóhannesar Kr. Jóhannesarson langalangafa. 
Nafn þitt fær að lifa áfram þó svo styttan sé ekki ennþá risin á Austurvelli við hlið Jóns Sigurðssonar. Hver veit hvort það gerist á næsta ári þegar ég hlýt fálkaorðuna fyrir Framboðið.

Sýnt í Skugga, Austurstræti nr. 22a. 
(fyrir ofan Grillmarkaðinn)

Frumsýning Mánudagurinn 26.mars Kl.
20:00 
Lokasýning Mánudagurinn 26. Mars Kl.
21:00

Leikkona og höfundur: Þórey Birgisdóttir
Sýningastjórn: Ebba Katrín Finnsdóttir
Tækni: Guðmundur Felixson.

Frítt inn en takmarkað aðgengi.
Miðapantanir sendist á lhi.midasala [at] gmail.com