Mutter Courage er talið með bestu leikverkum 20.aldarinnar, og er eitt kröftugasta stríðsádeiluverk sögunnar. Það er viðeigandi að bekkur sem samanstendur að þremur fjórðu hlutum af konum rýni í þetta verk. Mutter Courage er mikil ádeila á stöðu konunnar í stríði, konunnar sem fær engu um framgang stríðsins ráðið en er fórnarlamb þess engu síður og missir allt sitt. Verkið á vel við þessa ungu kynslóð sem hefur verið í oddaflugi síðustu kven- og mannréttindabyltingar, þeirri er enn stendur yfir. Boðskapur hennar er einfaldur. Allir eru jafnir að verðleikum.
Verkið verður frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri 9. maí, í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 16.maí og er unnið í samstarfi við Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið. Sýningar hefjast kl. 20.
Útskriftarefnin sem taka þátt í uppfærslunni eru þau; Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Berglind Halla Elíasdóttir, Gunnar Smári Jóhannesson, Hildur Vala Baldursdóttir, Jónas Alfreð Birkisson, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Steinunn Arinbjarnardóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Sævar Helgi Jóhannsson nemi í tónsmíðum frá tónlistardeild semur og flytur tónlist í verkinu.
Listrænir aðstandendur:
Leikstjóri: Marta Nordal
Leikmynd og búningar: Auður Ösp Guðmundsdóttir
Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson
Leikmyndasmíði og tækni: Egill Ingibergsson
Aðstoðarleik - og sýningarstjóri: Anna Katrín Einarsdóttir
Frítt inn og en bóka þarf miða á tix.is