Barnamenningarhátíð 28. - 30. apríl 15 - 17, Norræna húsinu.
 
Norræna húsið, í samvinnu við listkennsludeild Listaháskóla Íslands, býður upp á skapandi samverustund fyrir fjölskyldur undir handleiðslu Guðbrands Magnússonar myndlistarmanns og nemanda við listkennsludeild.
 
Í vinnusmiðjunni gefst þátttakendum tækifæri að vinna myndskreytingar í tengslum við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
 
Vinnusmiðjan er opin öllum áhugasömum og fer fram kl 15-17 á neðri hæð Norræna hússins föstudaginn 28. apríl, laugardaginn 29. apríl og sunnudaginn 30 apríl.