Laugardaginn 12. september stendur listkennsludeild Listaháskóla Íslands fyrir útskriftarviðburði í Menningarhúsunum í Kópavogi. 
Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð LHÍ og þar kynna verðandi listgreinakennarar lokaverkefni sín með fjölbreyttum hætti.
 
Hrönn Waltersdóttir, keramiker og listgreinakennari frá listkennsludeild LHÍ leiðir tvær stuttar smiðjur þar sem unnið verður að náttúrutengdri leirmótun með íslenskum leir.
 
Smiðjurnar henta vel fyrir alla fjölskylduna sem fær tækifæri til að móta og fræðast saman um íslenskan leir. Hvað er leir? Hvaðan kemur hann? Hvað hefur leir fylgt okkur lengi? Hvað er úr leir? Hvað getum við gert með leir? Unnið verður við að móta og stækka upp minnstu dýrin úr náttúrunni í þrívítt form leirs með skreyti úr náttúrulegum íslenskum efnivið. Skoðaðar verða myndir af skordýrum og fræðst um hvað þau eru mikilvæg fyrir lífríkið og náttúruna. Notaður verður íslenskur leir úr Búðardal, greinar, lauf, ber, steinar, vatn, sandur og fleiri tilfallandi lífræn efni.
 
Smiðjan, sem er samstarfsverkefni listkennsludeildar Listaháskóla Íslands og Menningarhúsanna í Kópavogi, er byggð á meistarverkefni Hrannar, Efling leirlistakennslu í skólum á Íslandi- Má samþætta leirlistakennslu við aðrar námsgreinar?
 
Hrönn Waltersdóttir er frá Hveragerði og hefur verið með leirvinnustofu þar frá því um síðustu aldamót. Hrönn nam við lista-, hönnunar- og handverksbraut Iðnskólans í Hafnarfirði 2009-11, lauk diplómanámi í leirlist frá Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 2013 og BA (Hons) gráðu í samtíða listiðn frá Háskólanum í Cumbria í Bretlandi árið 2014.
 
Smiðjurnar eru samstarfsverkefni listkennsludeildar Listaháskóla Íslands og Menningarhúsanna í Kópavogi. Þátttaka í smiðjunum er gestum að kostnaðarlausu, en vegna fjöldatakmarkana er skráning nauðsynleg.
 
SKRÁNING
Til að skrá þátttöku í smiðju vinsamlegast sendið tölvupóst á Ingunni Fjólu, verkefnastjóra fræðslu og miðlunar í Gerðarsafni: 
ingunn.fjola [at] kopavogur.is (). Vinsamlegast tilgreinið tímasetningu sem óskað er eftir og fjölda gesta.
 
Smiðja 1: kl. 13.00-13.45
Smiðja 2: kl. 14.00-14.45
 
Fjölskyldustundir á laugardögum eru í boði Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Salurinn og Héraðsskjalasafn.
 
Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð LHÍ og þar sem verðandi listgreinakennarar kynna lokaverkefni sín með fjölbreyttum hætti. Í boði verða margskonar erindi og listasmiðjur fyrir alla fjölskylduna!