NÁMSKEIÐSFRAMBOРOPNA LISTAHÁSKÓLANS VORÖNN 2019

 
Í gegnum Opna listaháskólann getur fólk sótt námskeið í öllum deildum Listaháskóla Íslands.
 
Í fjölbreyttri námskeiðsflórunni er meðal annars hægt að læra um sýningagerð- og sýningastjórnun, kynna sér listmeðferð í námi, tengsl tónlistar og heilabilunar, fræðast um íslenska leiklistarsögu og einnig rannsaka möguleika í notkun einfaldra kóða og aðgengilegrar rafeindatækni í listsköpun og hönnun, svo fátt eitt sé nefnt en alls eru 29 námskeið í boði á vorönn ´19.
 
 
Kynningin fer fram í fyrirlestrarsal 193 á jarðhæð í húsnæði Listaháskólans að Laugarnesvegi 91.
 
Öll velkomin! 
 
 
Fylgstu með Opna LHÍ á Facebook