Sláðu inn leitarorð
Gleym-mér-ei // Tónleikaröð á Kjarvalsstöðum
06.10.2021 - 12:15 til 17.11.2021 - 13:00
Kjarvalsstaðir
Líkt og síðastliðin misseri standa söngnemendur tónlistardeildar LHÍ að
hádegistónleikum á miðvikudögum á Kjarvalsstöðum.
Tónleikaröðin stendur yfir í um 7-8 vikur á hverju misseri og byggist
efnisskráin á einhverskonar þema hverju sinni.
Gleym-mér-ei er unnið í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.
Tónleikarnir hefjast kl 12.15 eftirfarandi miðvikudaga haustið 2021.
6.10 - Norðanátt
13.10 - Ást og hatur
20.10 - Pabbakomplexar og paranoja
27.10 - Illmenni
10.11 - Líkamspartar
17.11 - Syngjum saman
Við hvetjum gesti og gangandi að líta við á þessar fallegu hádegisstundir.
Engin aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir.