Framhaldsaðalfundur Félags um Listaháskóla Íslands verður haldinn í húsnæði Tónlistardeildar að Sölvhóli fimmtudaginn 10. desember 2015 kl. 17:00.

Sölvhóll er tónleikasalur Tónlistardeildar sem staðsettur er sjávarmegin við húsnæði skólans á Sölvhólsgötu 13. Gengið er inn frá horni Klapparstígs og Skúlagötu

Eina mál fundarins eru breytingartillögur á samþykktum félagsins sem fylgja þessum pósti í viðhengi.

Til samanburðar eru núgildandi samþykktir félagsins einnig í viðhengi.

Athugið að samkvæmt samþykktum eru einungis skuldlausir félagar með rétt til fundarsetu á aðalfundi félagsins. Valgreiðslukrafa hefur verið send í heimabanka.

Samþykktir (PDF skjal)

Núverandi samþykktir (PDF skjal)