Fararsnið: Útskriftarsýning BA myndlistarnema Listaháskóla Íslands 2020

Listasafn Reykjavíkur hefur allt frá árinu 2003 hýst útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Sýningin í ár er um margt óvenjuleg lokasýning myndlistarnema. Þessi vorboði myndlistarsenunnar hefur oftast verið á ferðinni í byrjun maí, en opnar nú 13. júní, í lok skólaannar sem er engri annarri lík. Sýningin er ekki minnisvarði um þetta undarlega vor, heldur er hún vitnisburður um og afsprengi af þriggja ára lærdómsferli nemenda. Sýning hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands fer fram í ágúst á þessu ári í Gerðarsafni – Listasafni Kópavogs.

 

Hugleiðingar sýningarstjóra:
Tuttugu nemendur sem útskrifast frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands í ár takast á við hugðarefni myndlistarinnar hver á sinn hátt. Í verkum þeirra má sjá ólíkar aðferðir og efnistök sem mótast hafa í gegnum listnám sem nú er lokið.

Neyðarstig almannavarna vegna kórónuveirunnar er sett á á meðan verkin sem hér eru sýnd eru í undirbúningi – í miðju listrænu ferli nemenda – sem líkt og heimsbyggðin öll þurftu að takast á við óvissu í einhverju miðju. Við stöndum frammi fyrir breyttum forsendum - að minnsta kosti um stund - og það er óvíst hvort breytt heimsmynd mæti okkur í kjölfarið. Myndlistarmenn hafa ætíð stigið fæti í óvissu með þónokkurri fullvissu. Hugsanlega er það hluti af hinu stóra viðfangsefni listarinnar að takast á við óvissuna.

Nemendur leggja fram verk sín í óvissu, líkt og listin ávallt gerir, og með þeim kanna þeir umhverfi sitt, út frá eigin reynsluheimi, ímyndunarafli eða áhugasviði. Á óvissutímum býður þessi sýning upp á ferðalag um hin ólíku og fjöldamörgu viðfangsefni listarinnar og veita verkin innsýn í fjölbreyttan hugarheim myndlistarnemanna. Með fullri vissu gefur sýningin skýr merki um fararsnið kynslóðar komandi listamanna.

Aðgangur á sýninguna er ókeypis

/

Ready for take off: Iceland University of the Arts BA Graduation 2020

Reykjavík Art Museum has since 2003 housed the graduation exhibition of students from the fine art and the design & architecture departments in the Iceland University of the Arts. This exhibition of BA students in Fine Art at the Iceland University of the Arts is in many ways an unusual one. This herald of spring, which usually appears at the beginning of May but is now opening on the 13th of June, is the culmination of a semester unlike any other. The exhibition of design & architecture departments in the Iceland University of the Arts will take place at Gerðarsafn – Kópavogur Art Museum in August this year.

 

From the curator:
Twenty graduating students from the Department of Fine Art at the Iceland University of the Arts engage with the concerns of art, each on their own terms. In their works we find different methods and approaches that have emerged throughout their art education, a program that now is completed.

The coronavirus lockdown was instituted right as the students were preparing their works for this exhibition - in the midst of their artistic process - and, just as the whole world has had to, they had to take on this uncertainty while they were in the middle of something else. We stand before a changed set of circumstances - at least for a while - and it is uncertain whether we will see a changed world as a result. Artists have however always stepped into uncertainty with considerable certainty. This engagement with the unknown - dealing with uncertainty - is perhaps one of the main concerns of art.

Here, students present their work in uncharted territory, as art always does, and by doing so they explore their environment through their own experience, imagination and interests. In these times of uncertainty this exhibition offers a journey through the different, multitudinous subjects and concepts of art as well as giving insight into the manifold interior worlds of each individual student. And we can be certain that this exhibition gives us a clear indication that a new generation of artists is ready for take-off.

Admission is free

Nemendur / Students:
Alexander Hugo Gunnarsson
Andri Þór Arason
Anika Baldursdóttir
Atli Pálsson
Auðunn Kvaran
Birkir Mar Hjaltested
Clare Aimée Gossen
Daníel Ágúst Ágústsson
Einar Lúðvík Ólafsson
Gréta Jónsdóttir
Jóhanna Margrétardóttir
Kristján Thorlacius Finnsson
Margrét Dúadóttir Landmark
María Lind Baldursdóttir
Rakel Andrésdóttir
Renāte Feizaka
Sólbjört Vera Ómarsdóttir
Sölvi Steinn Þórhallsson
Silfrún Una Guðlaugsdóttir &
Tara Njála Ingvarsdóttir

 

Sýningarstjóri / Curator:
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir